Giorgio Baruchello

Giorgio Baruchello er íslenskur ríkisborgari og prófessor í heimspeki við Háskólann á Akureyri. Hann fæddist í Genúa, Ítalíu, nam heimspeki þar og í Reykjavík, Íslandi, og lauk doktorsprófi við Háskólann í Guelph, Kanada, með ritgerðinni Understanding Cruelty: From Dante to Rorty. Leiðbeinandi hans í Kanada var John McMurtry.

Fræðiverk Giorgio rannsaka gildisfræði, félags- og stjórnmálaheimspeki, hugmyndasögu, siðfræði, gagnrýna hugsun, mælskulist og heimspeki húmors. Í verkunum er spurt: hvernig grimmd, heimska, gildi og ábyrgð mótar stofnanir og sjálfsskilning manna. Vit og vitleysa ráða örlögum okkar.

Bókmenntaverk hans yfirgefa ekki heimspekina. Þau beita annari tækni til að fjalla enn um fullorðinsleg og alvarleg efni án þess að slétta þau út í hátíðleika.

P.S. Sem gegnsýrður Jungískur fræðimaður veit Giorgio að netblogg er augljós framlenging á sálarpersónu hans. Þess vegna er bloggið skrifað í þriðju persónu, og orð þess eru ætluð til að hæðast að höfundi sínum á óvirðulegastan hátt. Sérstaklega fyrir íslenskuna. Þetta þýðir líka notkun tökuorða og óþjállar, kræklóttrar, ótýpískrar, skapandi, frumlegrar íslensku eftir gamlan, menntaðan, bókalesandi Akureyring sem fæddist á Ítalíu á síðasta öld — þ.e. ekki í Eyjafirði.